Fotbolti.net
31.01.17 - 12:42
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Riccardo Orsolini til Juventus (Staðfest)

Riccardo Orsolini í leik með U20 liði Ítalíu.

Riccardo Orsolini í leik með U20 liði Ítalíu.

Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Sú mikla vinna sem ég hef lagt á mig hefur skilað sér,\"</i> segir vængmaðurinn Riccardo Orsolini sem er orðinn leikmaður Juventus. Þessi tvítugi unglingalandsliðsmaður Ítalíu er keyptur frá Ascoli.

Ítalíumeistararnir lána Orsolini aftur til Ascolo út tímabilið.
„Ég er náttúrulegur vængmaður. Ég er vanur því að spila hægra megin og get þá komið inn völlinn og notað vinstri fótinn til að skjóta eða leggja upp á samherja.\"

„Ég veit að ég þarf að bæta mig varnarlega og það er hlutur sem ég er þegar farinn að vinna í hjá Ascoli. Ég vil alltaf bæta mig og er spenntur fyrir framtíðinni.\"

Af öðrum fréttum af leikmannamálum á Ítalíu má geta þess að Lucas Ocampos er kominn í AC Milan á lánssamningi frá Genoa. Ocampos er 22 ára argentínskur vængmaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.