31.01.17 - 20:49
Ívan Guðjón Baldursson
Robbie Brady til Burnley á metfé (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Burnley er búið að staðfesta kaup á Robbie Brady, sem kemur til félagsins fyrir metfé.
Brady er vinstri bakvörður sem getur einnig spilað á kantinum, en kaupin voru staðfest í hátalarakerfinu í hálfleik í leik Burnley gegn Leicester City sem er í gangi.

Brady, sem ólst upp hjá Manchester United, er samningsbundinn Burnley til 2021.
Bakvörðurinn hefur verið einn af allra bestu mönnum Norwich undanfarin misseri en hann á yfir 150 leiki að baki fyrir Hull City og Norwich þrátt fyrir að vera nýorðinn 25 ára.
Ljóst er að Brady kemur fyrir metfé, en kaupverðið er talið nema um 13 milljónum punda.