Fotbolti.net
31.01.18 - 23:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andy King til Swansea á láni frá Leicester (Staðfest)

Andy King til Swansea á láni frá Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur fengið miðjumanninn Andy King á lánssamningi frá Leicester City út leiktíðina. Frá þessu var greint fyrir stuttu.

Hinn 29 ára gamli King er búinn að vera hjá Leicester allan sinn feril, en síðustu árin hefur hann að mestu verið notaður í varahlutverki.
Swansea þurfti á miðjumanni að halda eftir að hafa lánað Spánverjann Roque Mesa til Sevilla á dögunum.

King er annar leikmaðurinn sem Swansea fær til sín í dag en fyrir nokkrum tímum staðfesti félagið kaup á Andre Ayew frá West Ham fyrir metfé. Ayew þekkir vel til hjá Swansea því hann spilaði með liðinu tímabilið 2015/2016 þegar hann skoraði tólf mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.