Fotbolti.net
31.01.18 - 21:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Badou Ndiaye til Stoke á 16 milljónir (Staðfest)

,,Velkominn til félagsins\"

,,Velkominn til félagsins\"

Canon

Mynd: Getty Images

Stoke hefur rifið fram veskið og keypt miðjumanninn Badou Ndiaye frá Galatasaray í Tyrklandi. Stoke staðfesti þetta rétt í þessu en Ndiaye gekk inn á völlinn í hálfleik í leik Stoke og Watford sem nú er í gangi og heilsaði upp á stuðningsmenn.

Stoke var í kapphlaupi við tímann að klára alla pappírsvinnu fyrir lok félagaskiptagluggans en það tókst hjá þeim. Félagaskiptaglugginn lokar eftir rétt tæpa tvo tíma þegar þessi frétt er skrifuð.
Kaupverðið er sagt vera 16 milljónir punda. Hann er einn dýrasti leikmaðurinn í sögu Stoke.

Ndiaye er 27 ára gamall miðjumaður frá Senegal. Fyrsta lið hans í Evrópu var Bodø/Glimt í Noregi, en frá 2015 hefur hann leikið í Tyrklandi, fyrst með Osmanlıspor og svo með Galatasaray.

Hans verkefni er að hjálpa Stoke að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni, en liðið er sem stendur í 18. sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.