Fotbolti.net
31.01.18 - 20:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bebe færir sig um set á Spáni (Staðfest)

Bebe var eitt sinn á mála hjá Manchester United. Það var skrautlegt.

Bebe var eitt sinn á mála hjá Manchester United. Það var skrautlegt.

Canon

Mynd: Getty Images

Bebe, fyrrum framherji Manchester United, er kominn til Rayo Vallecano á láni frá Eibar út þetta tímabil.

Rayo Vallecano er í B-deildinni á Spáni og er þar í harðri baráttu um að komast upp í La Liga. Þar á bæ fannst mönnum því kjörið að sækja hinn portúgalska Bebe frá Eibar.

Þetta er í annað sinn sem Bebe fer til Rayo Vallecano á láni en hann var þar líka tímabilið 2015/16. Þá skoraði þrjú mörk í 34 leikjum.
Hinn 27 ára gamli Bebe Bebe kom til Manchester United á 7,4 milljónir punda árið 2010 en spilaði lítið sem ekkert.

Eftir að hafa verið á láni hjá Besiktas, Rio Ave og Pacos de Ferreira fór Bebe til Benfica árið 2014. Þaðan fór hann til Cordoba og Rayo Vallecano á láni áður en hann samdi við Eibar árið 2016.

Hann hefur komið við sögu í níu leikjum í La Liga á þessu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.