31.01.18 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Böddi löpp var eftirsóttur í Austur-Evrópu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH tilkynnti í dag að Böðvar Böðvarsson, Böddi löpp, hefði verið seldur til Jagiellonia Bialystok í Póllandi.
Böddi hefur verið eftirsóttur undanfarna mánuði en félög í Austur-Evrópu hafa sérstaklega sýnt honum áhuga. Fleiri félög í Póllandi vildu fá Böðvar sem og félög í Hvíta-Rússlandi og Rúmeníu svo eitthvað sé nefnt.
„Það voru nokkur félög sem höfðu áhuga og það komu nokkur tilboð,\" sagði Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH við Fótbolta.net í dag.
FH-ingar náðu samkomulagi við Jagiellonia Bialystok í dag og eru sáttir með samninginn.
„Þetta er fínt verð. Við seljum ekki leikmenn nema við fáum það sem við viljum. Við erum mjög ánægðir með þetta,\" sagði Birgir.
Sjá einnig:
Böddi: Léti loka mig inni á Litla-Hrauni ef það myndi auka möguleika á að komast á HM
Böddi löpp til Jagiellonia Bialystok (Staðfest)