Fotbolti.net
31.01.18 - 19:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Everton lánar Lookman til RB Leipzig (Staðfest)

Ademola Lookman.

Ademola Lookman.

Canon

Mynd: Getty Images

Ademola Lookman, efnilegur leikmaður Everton, er farinn á láni til RB Leipzig í Þýskalandi út þessa leiktíð.

Þetta kemur nokkuð á óvart eftir að Sam Allardyce, stjóri Everton, sagði fyrir tveimur dögum að Lookman væri ekki á förum.

Lookman hefur komið við sögu í 16 leikjum hjá Everton á þessu tímabili, en hann fær nú tækifæri í öðru liði, í öðru landi.
Hinn tvítugi Lookman er annar leikmaðurinn sem fer frá Everton á þessum gluggadegi eftir að Sandro Ramirez fór til Sevilla fyrr í dag.

Everton er að reyna að landa Eliaquim Mangala, varnarmanni Manchester City, áður en glugginn lokar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.