31.01.18 - 20:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nagatomo í Galatasaray (Staðfest) - „Síðasti samúræjinn\"

Nagatomo í leik með Inter fyrir nokkrum árum.

Mynd: Getty Images

Nagatomo í leik með Inter fyrir nokkrum árum.

Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Yuto Nagatomo hefur kvatt herbúðir Inter Milan þar sem hann mun spila með Galatasaray í Tyrklandi út þessa leiktíð. Hann hefur verið lánaður til Galatasaray.
Nagatomo, sem er japanskur landsliðsmaður, hefur fengið lítinn spiltíma hjá Luciano Spalletti, stjóra Inter, á þessu tímabili.
Nagatomo hefur leikið 210 leiki fyrir Inter í öllum keppnum fyrir Inter eftir að hann kom til liðsins árið 2011.

Hann hefur nú breytt til og mun klára þessa leiktíð með Galatasaray sem er í öðru sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar.
Athyglisvert er hvernig Galatasaray tilkynnti um kaupin en þar er Nagatomo mættur í stað Tom Cruise á veggspjald fyrir kvikmyndina \"Síðasti samúræjinn\" sem var gefin út 2003.
Athyglisvert er hvernig Galatasaray tilkynnti um kaupin en þar er Nagatomo mættur í stað Tom Cruise á veggspjald fyrir kvikmyndina \"Síðasti samúræjinn\" sem var gefin út 2003.
Galatasaray hefur fengið japanska varnarmanninn Yuto Nagatomo á láni frá Inter út tímabilið. Kynntur til leiks með stæl! pic.twitter.com/H0rSvdT3K0
— Gluggadagurinn (@Fotboltinet) January 31, 2018