31.01.18 - 16:50
Magnús Már Einarsson
Giroud til Chelsea (Staðfest)

Giroud verður í treyju númer 18 hjá Chelsea.

Mynd: Chelsea

Giroud fagnar einu af mörkum sínum hjá Arsenal.

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur keypt franska framherjann Olivier Giroud frá Arsenal. Talið er að kaupverðið hljóði upp á 15,3 milljónir punda en 2,2 milljónir punda gætu bæst við síðar meir.
Giroud er hluti af framherjakapli sem hefur verið í gangi undanfarin sólarhring. Arsenal keypti Pierre-Emerick Aubameyang frá Dortmund í dag en þýska félagið fær Michy Batshuayi á láni frá Chelsea í staðinn. Chelsea fyllir síðan skarð Batshuayi með Giroud.

Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur verið orðaður við marga hávaxna framherja í mánuðinum en hann hefur verið í leit að öflugum skallamanni.
Edin Dzeko (Roma), Peter Crouch (Stoke), Ashley Barnes (Burnley) og Andy Carroll (West Ham) voru meðal annars allir orðaðir við West Ham áður en niðurstaðan varð Giroud.
„Chelsea er eitt af stærstu liðunum í ensku úrvalsdeildinni. Þeir hafa unnið titil kannski síðustu sex eða sjö ár. Þetta er risa félag og ég er stoltur af því að skrifa undir hjá Chelsea. Ég hlakka til að byrja að spila,\" sagði Giroud.
Hinn 31 árs gamli Giroud kom til Arsenal frá Montpellier á 9,6 milljónir punda árið 2012. Síðan þá hefur hann skorað 73 mörk í 180 deildarleikjum.
Giroud átti ekki fast sæti í liði Arsenal á þessu tímabili og því var hann til í að róa á önnur mið. Síðastliðið sumar hafnaði hann Everton þar sem eiginkona hans vildi ekki flytja frá London.
Chelsea mætir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og reikna má með að Giroud verði í stúkunni þar.

Welcome to Chelsea, @_OlivierGiroud_! 👍#GiroudIsBlue pic.twitter.com/rY1VRsgyYk
— Chelsea FC (@ChelseaFC) January 31, 2018
27 – Since his debut in August 2012, Olivier Giroud has scored more headed goals in the Premier League than any other player. Height. pic.twitter.com/nJ6zTP8SZj
— OptaJoe (@OptaJoe) January 31, 2018