31.01.18 - 23:40
Magnús Már Einarsson
Jordan Hugill til West Ham (Staðfest)

Hugill skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning.

Mynd: West Ham

West Ham hefur keypt framherjann Jordan Hugill í sínar raðir frá Preston.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en Preston segist aldrei hafa selt leikmann á jafnháa fjárhæð.
Hinn 25 ára gamli Hugill var markahæstur hjá Preston á síðasta tímabili en hann hefur skorað 30 mörk í 114 leikjum með liðinu.

Þrátt fyrir þennan liðsstyrk eru stuðningsmenn West Ham ekkert alltof ánægðir en þeir höfðu vonast eftir að fá fleiri leikmenn og stærri nöfn til félagsins fyrir gluggalok.
Þrettán leikmenn eru á meiðslalistanum hjá Hömrunum í augnablikinu og lítið má út af bregða.

Hugill is a Hammer #WelcomeJordan ⚒ pic.twitter.com/0xgrOsL4fg
— West Ham United (@WestHamUtd) January 31, 2018