31.01.18 - 23:05
Magnús Már Einarsson
Liverpool lánar Flanagan til Bolton (Staðfest)

Flanagan í leik árið 2014.

Mynd: Getty Images

Flanagan í leik árið 2014.

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur lánað bakvörðinn Jon Flanagan til Bolton Wanderers út tímabilið.
Flanagan var á dögunum dæmdur til að sinna samfélagsþjónustu í 40 klukkutíma eftir árás á kærustu sína.
Flanagan spilaði talsvert með Liverpool þegar liðið var í baráttu um enska meistaratitilinn tímabilið 2013/2014 en eftir það meiddist hann.
Þessi 25 ára gamli leikmaður á 51 leik að baki með aðalliði Liverpool en hann hefur lítið spilað með liðinu undanfarin ár.

Á síðasta tímabili var Flanagan á láni hjá Burnley og núna mun hann hjálpa Bolton í fallbaráttunni í Championship deildinni.