Fotbolti.net
31.01.18 - 18:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lucas Moura til Tottenham (Staðfest)

Lucas Moura.

Lucas Moura.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur fjárfest í brasilíska kantmanninum Lucas Moura en hann kemur frá Paris Saint-Germain í Frakklandi. Hann skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2023.

Talið er að Tottenham borgi allt að 23 milljónir punda fyrir hann.

Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Tottenham á laugardaginn gegn Liverpool, en hann verður augljóslega ekki með liðinu gegn Manchester United á Wembley í kvöld.

Moura skoraði sextán mörk á síðasta tímabili en Brasilíumaðurinn hefur verið í minna hlutverki í vetur eftir komu Neymar og Kylian Mbappe til Parísarliðsins síðasta sumar.

Moura hefur einungis leikið sex leiki með PSG á þessu tímabili.
Tottenham tókst að landa honum og kemur hann til með að auka breiddina hjá Lundúnaliðinu til muna. Hann má spila með liðinu í Meistaradeildinni þar sem hann hefur ekki spilað í henni í vetur.

🤝 pic.twitter.com/2geSeK0U6b

— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) January 31, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.