Fotbolti.net
31.01.18 - 16:54
Elvar Geir Magnússon

Michy Batshuayi lánaður til Dortmund (Staðfest)

Michy Batshuayi.

Michy Batshuayi.

Canon

Mynd: Borussia Dortmund

Umtalaðasti fótboltakapallinn er genginn upp en Michy Batshuayi er orðinn leikmaður Borussia Dortmund.

Sóknarmaðurinn var í félagaskiptahringekju sem innihélt Pierre-Emerick Aubameyang sem fór frá Dortmund til Arsenal og Olivier Giroud sem fór frá Arsenal til Chelsea.
Dortmund vildi ekki selja Aubameyang til Arsenal nema ef félagið fengi leikmann til að fylla skarð hans og nú er Batshuayi mættur á lánssamningi út tímabilið.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd fær Batshuayi númerið 44 hjá Dortmund.

Chelsea fékk Batshuayi frá Marseille 2016 en leikmaðurinn hefur ekki náð að festa sig í sessi á Stamford Bridge.

Hann hefur skorað fimm mörk í ellefu landsleikjum fyrir Belgíu.

Dortmund er í sjötta sæti þýsku deildarinnar, 19 stigum frá meisturunum í Bayern München sem eru á toppnum að vanda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.