31.01.18 - 18:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ndong til Watford (Staðfest)

Ndong er kominn til Watford.

Mynd: Watford

Ndong er kominn til Watford.

Mynd: Watford
Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Watford í dag. Rétt í þessu var félagið að staðfesta lánssamning við Sunderland og fær félagið miðjumanninn Didier Ndong.
Ndong mætti í læknisskoðun hjá Watford í morgun og hefur nú skrifað undir lánssamning við félagið.

Ndong er 23 ára gamall en hann kemur frá Gabon.
Ndong varð dýrastur í sögu Sunderland þegar félagið keypti hann frá Lorient á 13,6 milljónir punda sumarið 2016. Hann féll síðan með Sunderland úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Watford er sem stendur í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en stefnir á betri árangur undir stjórn Spánverjans Javi Gracia sem var ráðinn til starfa eftir að Marco Silva var rekinn á dögunum.