31.01.18 - 17:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Oxford aftur til Gladbach (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Reece Oxford er farinn aftur til Þýskalands. Hann hefur verið lánaður frá West Ham til Borussia Mönchengladbach þar sem hann mun spila á seinni hluta þessarar leiktíðar.
Oxford var lánaður til Gladbach síðasta sumar en var kallaður til baka af West Ham fyrr í þessum mánuði.
West Ham hefur nú ákveðið að lána hann aftur til Gladbach. RB Leipzig hafði líka áhuga á að fá hann í sínar raðir, en það var Gladbach sem hreppti þennan efnilega leikmann.
Oxford er aðeins 19 ára.

Oxford spilaði fjóra leiki fyrir Gladbach, sem er í sjöunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar, á fyrri hluta tímabilsins.