31.01.18 - 12:19
Elvar Geir Magnússon
Özil búinn að skrifa undir nýjan samning við Arsenal (Staðfest)

Mesut Özil.

Mynd: Getty Images

Mesut Özil.

Mynd: Getty Images
Þýski landsliðsmaðurinn Mesut Özil hefur skrifað undir samning við Arsenal til 2021 en BBC greinir frá þessu.
Sagt er að þessi 29 ára leikmaður fái 350.000 pund í vikulaun, fyrir skatt, og verði þar með launahæsti leikmaður Arsenal.
Samningur Özil átti að renna út í júní en hann er búinn að gera nýjan samning við félagið.

Arsene Wenger ýjaði að því í síðustu viku að Özil væri nálægt því að skrifa undir nýjan samning.
„Okkar markmið er að halda Özil hjá félaginu. Vonandi tekst það mjög bráðlega,\" sagði Frakkinn síðasta föstudag.
Staðan var önnur í byrjun janúar þegar vangaveltur voru uppi um það hvort Manchester United gæti fengið hann.
Özil er sagður kunna vel við sig í London og að kaupin á Aubameyang og Mkhitaryan hafi ekki með þessa ákvörðun að gera.
Özil hefur átt 49 stosendingar síðan hann lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni fyrir fimm árum. Hann kom til Arsenal frá Real Madrid 2013.