Fotbolti.net
31.01.18 - 19:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Samningi Debuchy rift - Farinn til Frakklands (Staðfest)

Samningi Debuchy rift - Farinn til Frakklands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Samningi Arsenal við Mathieu Debuchy hefur verið rift og er hann farinn heim til Frakklands. Debucy hefur gert samning við Saint-Etienne sem leikur í úrvalsdeildinni í Frakklandi.

Þar með er martraðardvöl Debuchy hjá Arsenal lokið.

Þessi franski hægri bakvörður hefur aðeins leikið 13 deildarleiki fyrir Arsenal síðan hann var keyptur til félagsins frá Newcastle fyrir 12 milljónir punda sumarið 2014. Þrálát meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá kappanum.
Debuchy er 32 ára, en hann hefur einnig leikið með Bordeaux og Lille á ferli sínum, auk þess að eiga 27 landsleiki fyrir Frakkland.

Saint-Etienne er í 14. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar sem stendur og er í harðri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.