Fotbolti.net
31.01.18 - 20:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Silva fyllir í skarð Emerson hjá Roma (Staðfest)

Jonathan Silva fer til Roma á láni.

Jonathan Silva fer til Roma á láni.

Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur fengið argentíska vinstri bakvörðinn Jonathan Silva til sín á láni frá Sporting Lisabon.

Roma seldi vinstri bakvörðinn Emerson Palmieri til Englandsmeistara Chelsea á 17,6 milljónir punda í gær og kemur Silva til með að fylla í skarð hans í Rómarborg.

Silva kemur á láni en Roma hefur forkaupsrétt á honum.
Roma ætlaði fyrst að kaupa Daley Blind frá Manchester United en félagið ákvað frekar að fara á eftir Silva.

Hinn 27 ára gamli Blind er frá keppni í augnablikinu vegna meiðsla en hann verður samningslaus sumarið 2019.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.