Fotbolti.net
31.01.18 - 23:35
Magnús Már Einarsson

Slimani til Newcastle á láni (Staðfest)

Slimani í baráttunni.

Slimani í baráttunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur fengið framherjann Islam Slimani á láni frá Leicester út tímabilið. Þar með lýkur leit Newcastle að nýjum framherja.

Daniel Sturridge ákvað að hafna Newcastle og ganga í raðir WBA í gær auk þess sem Feyenoord vildi ekki samþykkja tilboð í danska framherjann Nicolai Jörgensen.

Alfreð Finnbogason, framherji Augsburg og íslenska landsliðsins, var orðaður við Newcastle í morgun en á endanum varð það Slimani sem fór til Norður Englands.

Gengið var frá félagaskiptunum rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 23:00 í kvöld.

Slimani er 29 ára gamall Alsíringur sem varð dýrastur í sögu Leicester þegar hann kom til félagsins frá Sporting Lisabon á 28 milljónir punda sumarið 2016.

Í vetur hefur Slimani ekki átt fast sæti í liðinu og Leicester hefur nú leyft honum að fara á láni líkt og framherjunum Leonardo Ulloa og Ahmed Musa sem fóru til Brighton og CSKA Moskvu í vikunni.

CONFIRMED: The deal to bring Islam Slimani to Newcastle United on loan until the end of the season is complete! #NUFC pic.twitter.com/avtJGgtxfk

— Newcastle United FC (@NUFC) January 31, 2018


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.