Fotbolti.net
31.01.18 - 16:45
Magnús Már Einarsson

Tobias Thomsen í Val (Staðfest)

Tobias skrifaði undir í dag.

Tobias skrifaði undir í dag.

Canon

Mynd: Valur

Danski framherjinn Tobias Thomsen hefur samið við Val. Samningurinn er út þetta ár með möguleika á framlengingu.

Á síðasta tímabili skoraði Tobias 13 mörk í 25 leikjum með KR í Pepsi-deildinni og Borgunarbikarnum.

„Ég get ekki beðið eftir að fara aftur til Íslands. Ég er mjög spenntur,\" sagði Tobias í viðtali við Fótbolta.net í gær.
Áður en Tobias kom til Íslands þá lék hann með Köge, Nyköping, Naestved og Akademisk á árunum 2011-2017.

„Tobias er vinnusamur og harðduglegur leikmaður sem mun án efa styrkja sóknarlínu Vals til mikilla muna. Knattspyrnudeild Val lýsir mikilli ánægju með komu Tobiasar,\" segir í fréttatilkynningu frá Val.

Sjá einnig:
Tobias Thomsen: Get ekki beðið eftir að fara aftur til Íslands

Komnir:
Birkir Már Sævarsson frá Hammarby
Kristinn Freyr Sigurðsson frá GIF Sundsvall
Ívar Örn Jónsson frá Víkingi R.
Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni
Sveinn Sigurður Jóhannesson frá Stjörnunni
Tobias Thomsen frá KR
Valur Reykjalín Þrastarson frá KF

Farnir:
Haukur Ásberg Hilmarsson
Orri Sigurður Ómarsson í Sarpsborg
Nicolas Bogild
Sindri Scheving í Víking R.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.