31.01.19 - 15:17
Ívan Guðjón Baldursson
Aboubakar Kamara til Tyrklands (Staðfest)

Kamara reif knöttinn af Mitrovic og klúðraði svo vítaspyrnu gegn Bournemouth.

Mynd: Getty Images

Tyrkneska félagið Yeni Malatyaspor er búið að staðfesta komu Aboubakar Kamara á láni út tímabilið.
Kamara kemur á láni frá Fulham en hann er langt frá því að vera í náðinni þar eftir atvik síðustu mánuða.
Hann var bannaður frá æfingum með aðalliðinu eftir slagsmál við Aleksandar Mitrovic í jógatíma og nokkrum dögum síðar var hann handtekinn fyrir að ráðast á starfsmann Fulham sem meinaði honum inngöngu á æfingasvæðið.
Kamara er 23 ára Frakki sem hefur gert 12 mörk í 50 leikjum frá komu sinni til Fulham fyrir einu og hálfu ári.
Malatyaspor er í þriðja sæti tyrknesku deildarinnar og getur keypt Kamara fyrir 15 milljónir evra.