Fotbolti.net
31.01.19 - 13:20
Magnús Már Einarsson

Antonio Barreca til Newcastle á láni (Staðfest)

Antonio Barreca.

Antonio Barreca.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur fengið vinstri bakvörðinn Antonio Barreca á láni frá Mónakó út tímabilið.

Newcastle borgar eina milljón punda fyrir lánssamninginn en félagið getur síðan keypt Barreca á níu milljónir punda í sumar.
Á dögunum var vinstri bakvörðurinn Jordan Lukaku nálægt því að koma til Newcastle frá Lazio á láni en hann féll á læknisskoðun. Barreca er nú kominn í staðinn.

Eftir róleg ár í félagaskiptum er stuð hjá Newcastle á gluggadeginum í dag.

Félagið er að kaupa miðjumanninn Miguel Almiron frá Atlanta á 21 milljón punda en hann verður dýrasti leikmaðurinn í sögu Newcastle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.