31.01.19 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
Barcelona fær Emerson næsta sumar (Staðfest)

Chelsea sýndi Emerson einnig áhuga.

Mynd: Google

Chelsea sýndi Emerson einnig áhuga.

Mynd: Google
Barcelona er búið að ganga frá kaupum á brasilíska hægri bakverðinum Emerson, sem mun ganga til liðs við spænska stórveldið næsta sumar frá Atletico Mineiro.
Barcelona greiðir 12 milljónir evra fyrir Emerson sem skrifar undir fimm ára samning, til 2024.
Emerson er nýlega orðinn tvítugur og þykir afar efnilegur. Hann er mikilvægur hlekkur í U20 liði Brasilíu og er gjarnan líkt við Dani Alves.
„Emerson er þekktur fyrir að hlaupa hratt, vera með hárnákvæmar sendingar og fyrir að vera bæði öflugur í sókn og í vörn," segir í tilkynningu Barcelona.
„Emerson er góður á boltanum og er mikið fyrir að taka hlaup inn í vítateig andstæðinganna. Hann er með merkilega gott markanef og hefur mikið þol."