31.01.19 - 21:09
Ívan Guðjón Baldursson
Barcelona flýtti fyrir félagaskiptum Todibo (Staðfest)

Mynd: Goal

Mynd: Goal
Barcelona ákvað í dag að flýta fyrir félagaskiptum Jean-Clair Todibo sem kemur til félagsins frá Toulouse.
Barcelona staðfesti félagaskiptin snemma í janúar þar sem Todibo, sem var einnig eftirsóttur af Manchester City, ætlaði að klára samninginn hjá Toulouse og yfirgefa félagið á frjálsri sölu næsta sumar.
Nú hefur staðan breyst og þurfa Börsungar að greiða 2 milljónir evra fyrir ungstirnið, sem getur leikið bæði í vörn og á miðju.
Toulouse vildi halda Todibo, bjóða honum nýjan samning og selja hann síðan en táningurinn hafnaði samningsviðræðum þegar hann frétti af áhuga stærstu félagsliða Evrópu á sér.
Toulouse hafnaði 4 milljón evra tilboði frá Man City í upphafi janúar til að reyna að halda í leikmanninn.