Fotbolti.net
31.01.19 - 16:47
Ívan Guðjón Baldursson

Bayern fær bandarískan táning (Staðfest)

Bayern fær bandarískan táning (Staðfest)
Canon

Mynd: Deseret News

Bayern var rétt í þessu að staðfesta komu Taylor Booth frá bandaríska félaginu Real Salt Lake.
Booth er 17 ára miðjumaður og er hann buinn að skrifa undir samning sem gildir út sumarið 2022.

„Ég er mjög ánægður með þetta skref. Bayern er eitt af stærstu félögum heims og hér get ég ræktað hæfileika mína undir bestu kringumstæðunum," sagði Booth.

„Ég er stoltur af því að hafa skrifað undir. Ég er augljóslega að gera eitthvað rétt."

Booth er fæddur 2001 og hefur verið lykilmaður hjá yngri landsliðum Bandaríkjanna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.