31.01.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Besti leikmaður 2. deildar áfram hjá Tindastóli (Staðfest)

Mynd: Óli Arnar - Feykir.is

Mynd: Óli Arnar - Feykir.is

Murielle Tiernan er búin að framlengja samning sinn við Tindastól og mun leika með liðinu næsta sumar.
Murielle var besti leikmaður Tindastóls síðasta sumar og var valin besti leikmaður 2. deildar. Tindastóll fékk 34 stig úr 14 leikjum og endaði í öðru sæti eftir Augnablik á markatölu.
Murielle verður gríðarlega mikilvæg í Inkasso-deildinni í sumar en hún skoraði 25 mörk í 15 leikjum í fyrra.
Félög í efstu deild hafa reynt að fá Murielle til liðs við sig en henni líður vel á Sauðárkrók og ákvað að vera þar áfram.
Murielle, fædd 1994, er bandarísk.