Fotbolti.net
31.01.19 - 18:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brighton kaupir tvo leikmenn (Staðfest)

Brighton kaupir tvo leikmenn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brighton var að fjárfesta í tveimur leikmönnum.
Varnarmaðurinn Tudor-Cristian Baluta er mættur til félagsins frá FC Viitorul Constanta í heimalandinu. Hann skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við Brighton.

Þessi 19 ára gamli leikmaður mun klára tímabilið í Rúmeníu og koma svo til Brighton næsta sumar. Þrátt fyrir ungan aldur á hann þrjá landsleiki fyrir A-landslið Rúmeníu.

Brighton var líka að kaupa slóvenska framherjann Jan Mlakar frá Maribor. Hann skrifar einnig undir þriggja og hálfs árs samning og klárar tímabilið í Slóveníu.

Mlakar er tvítugur og hefur skorað 10 mörk í 20 leikjum fyrir Maribor á þessu tímabili.

Ekki er gefið upp hvað þessir leikmenn kosta Brighton, sem er í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.