31.01.19 - 19:36
Ívan Guðjón Baldursson
Chievo fær Piazon frá Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chievo, botnlið ítölsku deildarinnar, er búið að tryggja sér þjónustu Lucas Piazon út tímabilið.
Piazon kemur á láni frá Chelsea en hann þótti eitt mesta efni heims og var eftirsóttur af Juventus þegar hann gekk í raðir félagsins fyrir sjö árum.
Piazon er orðinn 25 ára gamall og hefur aðeins komið við sögu í þremur keppnisleikjum hjá Chelsea. Hann hefur verið lánaður út undanfarin sex ár og alltaf fengið góðan spilatíma.
Piazon hefur spilað fyrir Malaga og Eintracht Frankfurt á láni en hann stóð sig best með Vitesse Arnhem í Belgíu þar sem hann gerði 11 mörk í 29 deildarleikjum. Hann spilaði 58 leiki á 24 mánaða láni hjá Fulham sem lauk í fyrra.
Piazon er fjölhæfur framherji en hans uppáhaldsstaða er á vinstri kanti. Hann á erfitt verk fyrir höndum sér hjá Chievo, sem er níu stigum frá öruggu sæti.