Fotbolti.net
31.01.19 - 19:17
Arnar Helgi Magnússon

Crouch til Burnley og Vokes til Stoke (Staðfest)

Crouch til Burnley og Vokes til Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Peter Crouch er genginn í raðir Burnley frá Stoke City og Sam Vokes er mættur til Stoke frá Burnley.

Fyrst var greint frá þessu í morgun en báðir leikmennirnir fóru í læknisskoðun hjá sínu nýja félagi fyrr í dag.
Hinn 38 ára gamli Crouch hefur mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og Sean Dyche, stjóri Burnley, vonast til að hún geti hjálpað til í fallbaráttunni sem er framundan.

Vokes er 29 ára gamall landsliðsmaður Wales en hann hefur ekki fengið að spila eins mikið og hann vill hjá Burnley.

Stoke City er um miðja deild í Championship og liðið virðist ekki ætla að keppa um sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Burnley er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er liðið fjórum stigum frá fallsæti.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.