31.01.19 - 18:34
Ívan Guðjón Baldursson
Emile Smith Rowe til Leipzig (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
RB Leipzig er búið að ganga frá lánssamningi við Emile Smith Rowe sem kemur frá Arsenal út tímabilið. Rowe er sóknarsinnaður miðjumaður og talinn gífurlega efnilegur.
Rowe er aðeins 18 ára gamall og hefur aldrei komið við sögu í ensku úrvalsdeildinni en er þó búinn að skora 3 mörk í 6 bikarleikjum fyrir félagið.
Rowe er þriðji leikmaður Arsenal sem er lánaður í þýsku deildina á tímabilinu eftir að Takuma Asano var lánaður til Hannover og Reiss Nelson til Hoffenheim síðasta sumar.
Asano hefur ekki riðið feitum hesti í þýsku deildinni en Nelson, fæddur 1999, er búinn að eiga magnað tímabil og hefur tekist að skora 6 mörk í 13 deildarleikjum þrátt fyrir að koma yfirleitt inn af bekknum.
Leipzig rétt náði að ganga frá lánssamningnum áður en félagaskiptaglugginn lokaði í Þýskalandi.