Fotbolti.net
31.01.19 - 21:16
Arnar Helgi Magnússon

Fyrirliði U23 liðs Liverpool til Blackpool (Staðfest)

Virtue (til hægri)

Virtue (til hægri)

Canon

Mynd: Getty Images

Matty Virtue er genginn til liðs við Blackpool en hann kemur til félagsins frá Liverpool.
Virtue var fyrirliði U23 ára liðs Liverpool. Hann er miðjumaður sem getur tekið þátt í sóknarleik jafnt sem varnarleik. Hann hefur skorað sex mörk fyrir U23 ára lið Liverpool á leiktíðinni.

Virtue gerir tveggja og hálfs árs samning við Blackpool sem situr í 8. sæti fyrstu deildar á Englandi.

Virtue náði ekki að spila leik fyrir aðallið Liverpool en hann æfði þó með aðalliðinu nokkrum sinnum á leiktíðinni.

„Ég er ánægður með það að þetta sé loksins gengið í gegn. Ég er búinn að vita þetta lengi og það er léttir fyrir mig að þetta sé frágengið. Ég get ekk beðið eftir því að byrja," sagði Virtue við undirskriftina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.