31.01.19 - 16:23
Ívan Guðjón Baldursson
Giovinco til Al-Hilal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalski sóknarmaðurinn Sebastian Giovinco er genginn til liðs við Al-Hilal í Sádí-Arabíu eftir fjögur farsæl ár með Toronto FC í MLS deildinni.
Giovinco vildi vera áfram hjá Toronto en félagið ákvað að láta hann fara til að lækka launakostnað hjá sér. Al-Hilal greiðir aðeins 2 milljónir evra fyrir félagaskiptin en Giovinco mun fá um 8 milljónir í árslaun hjá félaginu.
Giovinco ólst upp hjá Juventus og lék 132 leiki fyrir félagið áður en hann skipti yfir til Toronto. Giovinco er nýorðinn 32 ára gamall og á 23 A-landsleiki að baki fyrir Ítalíu.
Giovinco er goðsögn hjá Toronto og hefur verið einn af bestu leikmönnum bandarísku deildarinnar undanfarin ár, en hann gerði 83 mörk í 142 leikjum fyrir félagið.