Fotbolti.net
31.01.19 - 11:19
Magnús Már Einarsson

Heimir fær landsliðsmann frá Íran (Staðfest)

Heimir Hallgrímsson þjálfari Al Arabi.

Heimir Hallgrímsson þjálfari Al Arabi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Heimir Hallgrímsson, þjálfari Al Arabi, hefur fengið íranska varnarmanninn Morteza Pouraliganji frá Eupen í Belgíu.
Morteza er 26 ára gamall en hann á 35 landsleiki að baki fyrir Íran.

Hvert félag í Katar má vera með fjóra erlenda leikmenn inni á vellinum á sama tíma en einn af þeim verður að koma frá Asíu. Morteza verður væntanlega sá leikmaður hjá Al Arabi.

Heimir var með tvo önnur pláss laus fyrir erlenda leikmenn en hann fékk spænska sóknarmiðjumanninn Víctor Vázquez til Al Arabi á dögunum.

Þá er útlit fyrir að Heimir nái að landa framherjanum Wilfried Bony frá Swansea á næstu dögum. Fyrir er hjá Al Arabi brasilíski miðjumaðurinn Diego Jardel.

Aron Einar Gunnarsson, miðjumaður Cardiff, hefur einnig verið orðaður við Al Arabi en hann gæti farið til félagsins í sumar þegar hann verður samningslaus.

Smelltu hér til að hlusta á Heimi í Miðjunni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.