31.01.19 - 15:55
Ívan Guðjón Baldursson
Joel Campbell til Mexíkó (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Joel Campbell, kantmaður frá Kosta Ríka sem var í sjö ár hjá Arsenal, er búinn að skrifa undir samning við Club Leon í Mexíkó.
Campbell yfirgaf Arsenal síðasta sumar til að ganga til liðs við Frosinone í ítalska boltanum. Hann var fastamaður í byrjunarliðinu en tókst ekki að skora eitt einasta mark í sautján deildarleikjum.
Campbell á 80 landsleiki að baki þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára gamall og er Club Leon tíunda liðið sem hann spilar fyrir á ferlinum.
Club Leon er með fimm stig eftir fjórar umferðir í mexíkósku deildinni á tímabilinu.