Fotbolti.net
31.01.19 - 20:21
Arnar Helgi Magnússon

Kagawa til Besiktas á láni út leiktíðina (Staðfest)

Kagawa til Besiktas á láni út leiktíðina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Japaninn Shinji Kagawa er genginn til liðs við Besiktas á láni frá Dortmund út leiktíðina.
Kagawa hefur fengið fáa sénsa með Dortmund á tímabilinu og hefur einungis komið við sögu í fjórum leikjum á leiktíðinni.

Hann gaf það út í desember að hann vildi róa á önnur mið í janúar. Hann sagðist vilja spila í spænsku úrvalsdeildinni og byrjaði meðal annars að læra spænsku.

Það virðist ekkert ætla að stöðva velgengni Dortmund en liðið situr í toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar.

Besiktas er í sjötta sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar þegar mótið er rúmlega hálfnað.

Besiktas mætir Antalyaspor á sunnudag og ekki ólíklegt að stuðningsmenn liðsins fái þá að sjá Kagawa spila með liðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.