31.01.19 - 16:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leonardo Bacuna í Cardiff (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fjölhæfi miðjumaðurinn Leandro Bacuna hefur skrifað undir samning hjá Cardiff. Samningurinn gildir til 2023.
Hann kemur til Cardiff frá Reading, fer frá Íslendingafélagi í annað Íslendingalið. Talið er að hann kosti 3 milljónir punda.
Hjá Cardiff mun hann veita Aroni Einari Gunnarssyni samkeppni á miðsvæðinu.
Bacuna, sem er hollenskur, hefur leikið 28 leiki í Championship-deildinni á þessu tímabili og skorað þrjú mörk. Hinn 27 ára gamli Bacuna er með reynslu úr ensku úrvalsdeildinni, en hann lék áður með Aston Villa í deildinni.
Cardiff er í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.