31.01.19 - 19:29
Arnar Helgi Magnússon
Man Utd lánar markmann til KV Kortrijk (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur lánað markvörðinn Joel Pereira til belgíska félagsins KV Kortrijk út leiktíðina.
Pereira er fæddur árið 1996 en hann var á láni hjá Vitoria Setubal í Portúgal fyrr á leiktíðinni en snéri aftur til Manchester United í byrjun janúar.
Fleiri lið vildu fá Pereira og var hann meðal annnars orðaður við Reading.
KV Kortrijk situr í 10. sæti belgísku úrvalsdeildarinnar þegar 23 leikir hafa verið spilaður. Næsti leikur liðsins er gegn Lokoren á laugardaginn.
Peirera er fæddur í Sviss en hefur spilað með yngri landsliðum Portúgals. Hann á einn leik að baki fyrir Manchester United.

All the best to @ElgatoPereira1, who has joined Belgian side KV Kortrijk on loan until the end of the season. #MUFC
— Manchester United (@ManUtd) January 31, 2019