Fotbolti.net
31.01.19 - 20:32
Ívan Guðjón Baldursson

Mario Suarez kominn aftur í spænska boltann (Staðfest)

Mario Suarez kominn aftur í spænska boltann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rayo Vallecano er búið að tryggja sér miðjumanninn öfluga Mario Suarez á samningi út tímabilið.
Suarez kom upp gegnum unglingastarf Atletico Madrid og lék 185 leiki fyrir félagið á fimm árum, áður en hann var seldur til Fiorentina í skiptum fyrir varnarmanninn Stefan Savic.

Suarez náði sér ekki á strik í ítalska boltanum og var keyptur til Watford þar sem hann átti einnig erfitt uppdráttar, var lánaður til Valencia og að lokum seldur til Guizhou Hengfeng í Kína.

Suarez er 31 árs gamall og á 3 A-landsleiki að baki fyrir Spán og hátt upp í 40 leiki fyrir yngri landsliðin. Hann gæti orðið mikilvægur hlekkur í liði Vallecano sem er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið eftir fjóra sigra í síðustu fimm umferðum.

Mario Suarez verður samningslaus næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.