31.01.19 - 13:26
Ívan Guðjón Baldursson
Martial búinn að skrifa undir langtímasamning (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Anthony Martial er búinn að skrifa undir nýjan fimm og hálfs árs samning við Manchester United sem gildir til sumarsins 2024.
Martial er 23 ára kantmaður sem var keyptur til Man Utd sumarið 2015 fyrir 36 milljónir punda, sem munu verða að rúmlega 50 milljónum eftir aukagreiðslur.
Hann hefur verið partur af byrjunarliðinu frá komu sinni til félagsins og hefur skorað 46 mörk í 161 keppnisleik.
Martial er búinn að gera 8 mörk í 18 deildarleikjum á tímabilinu og hefur Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Man Utd, miklar mætur á honum.
Man Utd er í mikilli Meistaradeildarbaráttu við Arsenal og Chelsea, er komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar og 16-liða úrslit enska bikarsins.