Fotbolti.net
31.01.19 - 15:43
Ívan Guðjón Baldursson

Mitroglou og Diagne til Galatasaray (Staðfest)

Mitroglou og Diagne til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska stórveldið Galatasaray var að tilkynna komu tveggja sóknarmanna rétt í þessu.
Konstantinos Mitroglou kemur á 18 mánaða lánssamning frá Marseille og mun Galatasaray greiða launin hans á þeim tíma.

Mitroglou er þrítugur Grikki sem gerði 12 mörk í 32 deildarleikjum hjá Marseille. Hann hefur einnig spilað fyrir Benfica og Fulham og á 65 leiki að baki fyrir gríska landsliðið.

Markamaskínan Mbaye Diagne er einnig kominn til félagsins. Hann er 27 ára og kemur frá Kasimpasa þar sem hann hefur skorað 32 mörk í 34 leikjum. Hann er langmarkahæsti maður tyrknesku deildarinnar með 20 mörk, en næsti maður er búinn að skora 9.

Galatasaray er í öðru sæti tyrknesku deildarinnar, sex stigum eftir toppliði Basaksehir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.