Fotbolti.net
31.01.19 - 20:54
Ívan Guðjón Baldursson

Modeste aftur til Köln (Staðfest) - Fær ekki leikheimild

Modeste aftur til Köln (Staðfest) - Fær ekki leikheimild
Canon

Mynd: Getty Images

Köln er í toppbaráttu þýsku B-deildarinnar og var að styrkja hópinn sinn til muna með komu Anthony Modeste.
Modeste er franskur framherji sem sprakk út með Köln fyrir nokkrum árum og gerði 45 mörk í 73 leikjum fyrir félagið.

Stórlið víða um Evrópu voru orðuð við Modeste en hann endaði á því að skipta yfir til Tianjin Quanjian í kínverska boltanum, þar sem hann skoraði 16 mörk í 29 leikjum. Kínverska félagið greiddi 30 milljónir punda fyrir sóknarmanninn.

Köln borgar ekki fyrir félagaskipti Modeste því hann kemur á frjálsri sölu. Hann ákvað að yfirgefa Tianjin eftir að kínverska félagið hafði ekki greitt honum laun.

Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, taldi ástæðu Modeste ekki nægilega góða til að yfirgefa kínverska félagið og er með málið til skoðunar. Sóknarmaðurinn fær ekki leikheimild fyrr en málið er afgreitt.

Modeste skrifaði undir samning við Köln sem gildir til 2023, en samningur hans við Tianjin átti að renna út 2020.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.