Fotbolti.net
31.01.19 - 14:45
Ívan Guðjón Baldursson

Newcastle borgar metfé fyrir Almiron (Staðfest)

Dýrasti leikmaður í sögu MLS deildarinnar.

Dýrasti leikmaður í sögu MLS deildarinnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle er búið að staðfesta komu Miguel Almiron til félagsins fyrir metfé, eða 21 milljón punda.
Michael Owen er því orðinn næstdýrasti leikmaður í sögu félagsins en hann var keyptur fyrir 17 milljónir punda árið 2005.

Almiron er miðjumaður frá Paragvæ sem hefur verið einn af bestu leikmönnum bandarísku MLS deildarinnar undanfarin ár.

Almiron verður 25 ára gamall í næstu viku og er búinn að skrifa undir samning sem gildir út júní 2024.

Almiron spilar sem sóknartengiliður eða á miðri miðjunni og gerði hann 22 mörk í 68 leikjum fyrir Atlanta United, auk þess að eiga 20 stoðsendingar. Hann á 12 landsleiki að baki fyrir Paragvæ.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.