Fotbolti.net
31.01.19 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Otto orðinn dýrastur í sögu Wolves (Staðfest)

Otto orðinn dýrastur í sögu Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur keypt varnarmanninn Jonny Castro Otto frá Atletico Madrid á átján milljónir punda.
Hinn 24 ára gamli Otto hefur verið á láni hjá Wolves en hann hefur staðið sig vel í bakverðinum á þessu tímabili.

Atletico Madrid keypti Otto frá Celta Vigo síðastliðið sumar en lánaði hann strax til Wolves.

Otto er nú farinn frá Atletico án þess að hafa spilað einn einasta leik með liðinu.

Otto er núna dýrastur í sögu Wolves ásamt Adama Traore en hann kom á sömu upphæð frá Middlesbrough síðastliðið sumar. Traore hefur ekki fest sig í sessi í byrjunarliðinu en han hefur verið orðaður við endurkomu til Middlesbrough á láni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.