Fotbolti.net
31.01.19 - 20:02
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Parma bætti fjórum leikmönnum við sig (Staðfest)

Pepín í leik með Brescia.

Pepín í leik með Brescia.

Canon

Mynd: Getty Images

Það var gífurlega mikið í gangi hjá ítölsku félögunum á lokadegi janúargluggans og áttu nýliðar Parma sérstaklega góðan gluggadag.
Parma tryggði sér brasilíska markvörðinn Brazao en hann var keyptur í samstarfi við Inter. Brazao mun spila fyrir Parma út tímabilið og jafnvel næsta tímabil en eftir það mun hann skipta yfir til Inter.

Nicolas Schiappacasse var einnig að skrifa undir samning við Parma en hann kemur á láni út tímabilið frá Atletico Madrid. Schiappacasse er nýorðinn 20 ára og þykir eitt mesta efni Suður-Ameríku um þessar mundir, enda hefur hann skorað 18 mörk í 37 landsleikjum fyrir U20 lið Úrúgvæ.

Þá er Jose Machin, betur þekktur sem Pepín, kominn til félagsins. Hann er 22 ára miðjumaður sem kemur frá Pescara. Mattia Sprocati er einnig búinn að skrifa undir samning, hann er 25 ára kantmaður sem kemur frá Lazio.

Parma hefur komið skemmtilega á óvart á tímabilinu og er liðið um miðja deild, fimm stigum frá Evrópusæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.