Fotbolti.net
31.01.19 - 17:53
Ívan Guðjón Baldursson

Reece Oxford lánaður til Augsburg (Staðfest)

Reece Oxford lánaður til Augsburg (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United er búið að lána Reece Oxford til Augsburg sem er í harðri fallbaráttu í þýsku deildinni.
Oxford verður því nýr liðsfélagi Alfreðs Finnbogasonar og gæti leikið mikilvægt hlutverk á miðju liðsins.

Oxford fer á lánssamning út tímabilið en þessi tvítugi miðjumaður þykir gríðarlega efnilegur og fær hér með tækifæri til að sanna sig.

Oxford fór til Borussia Mönchengladbach á láni á síðasta tímabili en fékk ekki mikinn spilatíma.

Hann á 17 keppnisleiki að baki fyrir aðallið West Ham og 35 leiki fyrir yngri landslið Englands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.