Fotbolti.net
31.01.19 - 17:45
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Romulo til Lazio og Pellegrini til Cagliari (Staðfest)

Romulo til Lazio og Pellegrini til Cagliari (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Það er gífurlega mikið um félagaskipti sem eru að fara í gegn í ítalska boltanum um þessar mundir. Sampdoria, Torino, Empoli og Fiorentina voru öll að fá nokkra menn inn og senda aðra út en helstu félagaskiptin áttu sér stað hjá Lazio og Roma.
Lazio er búið að krækja í Romulo á lánssamning út tímabilið með kaupmöguleika. Romulo er 31 árs gamall og býr yfir gríðarlegri reynslu úr ítalska boltanum. Félagið ætlaði að fá Davide Zappacosta frá Chelsea en það gekk ekki upp.

Hann getur leyst margar stöður á vellinum en er aðallega notaður sem hægri bakvörður eða miðjumaður. Hann á 168 leiki að baki í Serie A, langflesta fyrir Verona, en hefur einnig leikið fyrir Fiorentina og Juventus auk Genoa.

Þá er Roma búið að lána ungstirnið Luca Pellegrini til Cagliari þar sem hann mun leika út tímabilið. Pellegrini er vinstri bakvörður fæddur 1999 og eru miklar væntingar bornar til hans fyrir framtíðina.

Pellegrini á fjóra Serie A leiki að baki með Roma og 29 leiki fyrir yngri landslið Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.