Fotbolti.net
31.01.19 - 14:59
Ívan Guðjón Baldursson

Ruben Semedo lánaður til Rio Ave (Staðfest)

Ruben Semedo lánaður til Rio Ave (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski bakvörðurinn og vandræðagemsinn Ruben Semedo hefur gengið til liðs við Rio Ave í portúgalska boltanum út tímabilið.
Semedo er samningsbundinn Villarreal en eyddi fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Huesca sem vermir botnsæti spænsku deildarinnar.

Huesca rifti lánssamningi Semedo mánuði fyrir tímann og ásakaði varnarmanninn um að hafa sýnt félaginu mikla vanvirðingu.

Semedo er að bíða eftir dómi í alvarlegu máli þar sem hann er ákærður fyrir morðtilraun, líkamsárás, mannrán og fleira. Dómari málsins gaf honum leyfi til að fara til Portúgal. Hann hefur þegar setið inni í hálft ár vegna málsins en gæti átt yfir höfði sér nokkur ár í viðbót.

Semedo er 24 ára gamall og á 14 leiki að baki fyrir yngri landslið Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.