31.01.19 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sandro Wagner kominn til Kína (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Búið er að staðfesta félagaskipti þýska sóknarmannsins Sandro Wagner frá Bayern München til Tianjin Teda í kínverska boltanum.
Wagner var fenginn til Bayern fyrir ári síðan og var öflug varaskeifa fyrir Robert Lewandowski undir lok síðasta tímabils en hefur aðeins skorað eitt mark fyrir félagið á þessu tímabili.
Hann taldi sig ekki vera að fá nægan spilatíma og bað um að vera seldur frá félaginu, þrátt fyrir að skora mark fyrir liðið á 104 mínútna fresti.
Wagner, sem er 31 árs, gerði tveggja og hálfs árs samning við kínverska félagið eða til sumarsins 2021. Hann mun þéna 15 milljónir evra á tíma sínum hjá félaginu.
Þýski þjálfarinn Uli Stielike er við stjórnvölinn hjá Tianjin og þarf að styrkja liðið fyrir komandi átök eftir slakt gengi á síðasta tímabili, þar sem félagið bjargaði sér frá falli á markatölu.