Fotbolti.net
31.01.19 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Shrewsbury krækir í fyrirliða varaliðs Man Utd (Staðfest)

Shrewsbury krækir í fyrirliða varaliðs Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn ungi Ro-Shaun Williams er búinn að yfirgefa Mancehster United og skrifa undir samning við Shrewsbury sem er í fallbaráttu í ensku C-deildinni.
Williams, 20, er búinn að skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við Shrewsbury og er þetta hans skref inn í atvinnumennsku eftir að hafa verið fyrirliði varaliðs Man Utd undanfarin ár.

„Mér líður eins og ég sé tilbúinn í atvinnumennsku, ég kom upp í gegnum gott starf hjá United og er tilbúinn til að spila við fullorðna karlmenn," sagði Williams.

Williams er ekki eini varnarmaðurinn sem Shrewsbury kynnti í dag því Scott Golbourne var einnig að koma til félagsins á frjálsri sölu. Golbourne er vinstri bakvörður og lék síðast fyrir Bristol City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.