Fotbolti.net
31.01.19 - 10:27
Magnús Már Einarsson

Stefán Ljubicic til Eastbourne Borough á láni (Staðfest)

Stefán Alexander Ljubicic.

Stefán Alexander Ljubicic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eastbourne Borough hefur fengið framherjann Stefán Alexander Ljubicic á láni frá Brighton.
Eastbourne Borough leikur í næstefstu utandeildinni á Englandi en liðið er í 15. sæti í norður riðlinu þar.

Hinn 19 ára gamli Stefán fór frá Keflavík til Brighton árið 2016.

Stefán hefur leikið með yngri liðum Brighton en hann var á síðasta tímabili á láni hjá Bognor Regis Town í utandeildinni í nokkrar vikur.

Stefán hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands en hann á fjóra U21 landsleiki að baki og er áfram gjaldgengur þar í undankeppni EM sem hefst í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.